Áróður

Þetta hljómar eins og frétt sem á að læðast inn í undirmeðvitund manna. "Það er alltaf sól í evrópusambandinu" eða eitthvað álíka.


mbl.is Hægt að baða sig áhyggjulaus í Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rómantísk kreppa & útrás

Smá pæling:

Erum við þekkt fyrir að deyja ráðalaus eða hvað?
Mig hefur lengi langað til að blogga um Þessa rómantísku kreppu sem fólk tekur nú andköfum yfir, en ekki í þessum klassíska röfl stíl sem virðisr tröllríða samfélaginu. Slíkur er hljómgrunnur fyrir hávaða og væl að þjóðin telur sig vera líkama handa og fóta lausan. Er þar svo víðs fjarri sem hugsast getur.
Það gæti verið að skapast hið fullkomna ástand fyrr útrás íslendinga. í staðin fyrir að gefa upp öndina og fara að rífast um álveg eða hvern á að hengja eða ekki ættu menn að skoða allt það sem malað gæti gull í stöðunni. Ég nenni ekki að vera enn einn bloggarinn sem talar bara um dauða og drepsóttir, heldur sá sem leggur eitthvað til. Íslendingar eiga jú fisk og ál til útflutnings það vitum við en við eigum líka mikið meira. Við erum með gríðalega flotta sælgætisframleiðslu sem á fullt erindi inn á markaði erlendis, núna fæst íslenskd nammi fyrir slikk og ætti þar af leiðandi að vera auðveldara að selja það út en áður. Spurningin er sú hvort hugvit og áhugi séu til staðar? Þetta gæti skapað fleiri störf á íslandi og gjaldeyri inn í landið. Við höfum í einhverju mæli verið að flytja út íslenskt lambakjöt hvernig væri að setja meiri kraft í það? Svona er hægt að telja lengi og vonast eftir því að aðrar þjóðir fái svo matarást á okkur. Þá á ég auðvitað ekki við um þorramat. Við getum vel lang sitt lítið að mörkum sem til lengri tíma er litið mun gefa okkur meira jafnvægi. Það er til íslensk hönnun, bókmenntir, hátækni og hugbúnaðarger, lyfjaframleiðsla, stoðtækjavinnsla og svo ýmislegt fleira. Þetta er allt það sem við erum að gera nú þegar. Margt getum við síðan gert sem ekki enn er verið að gera hérna og flutt út. Við erum með landið fullt af kláru fólki, það er tími núna til að verð frumkvöðull og það er tími til að styðja við þá sem fyrir eru. Getum við þetta? Er leið út? Hvað haldið þið?

Það er mikilvægt að koma með hugmyndir að "nýrri" umræðu sem gæti svo virkað sem hvatning, eða Guð má vita. Nú ef ekki þá er alltaf hægt að horfa á silfrið.


Að bera ekki ábyrgð

Það er svolítið merkilegt að lesa fréttir að þessu tagi alltaf öðru hvoru. Við setjum framm tölur og rannsóknir um hversu skelfilega feit við erum orðin og hversu mikinn sykur við borðum, stundum jafnvel líka hversu mikið af harðri fitu við erum með í matnum. Hinsvegar spáir enginn í af hverju þetta er og hvernig er hægt að breita því og hver ætti að breita því.
Foreldrar bera auðvita mestu ábyrðina, þetta byrjar allt hjá þeim. Hvað eru foreldrað að gefa börnum sínum að borða, maður fitnar ekki bara af því að loftið er eitthvað að breytast. Hvaða venjur eru í gangi á heimilum? Ég held að foreldrar séu sjáfir margir að bjóða uppá mikið af drasli á heimilum, þetta byrjar allt í innkaupsferðinni. Allar umræður um gos og djúsneyslu barna er sennilega vegna þess að þetta er aðgengilegt og í boði. Vatn þykir ekki drykkur lengur.
Þar sem foreldra eru svo úti í þjóðfélaginu þá taka þeir ákvarðanir um hvernig aðgengi börnin eiga að hafa þegar þau eru í skólum og íþróttum. Hefur einhver spáð í því afhverju það eru gossjálfsalar á víð og dreif um skólalóðir en nánast ekkert hægt að komast í vatn. Á sjúkrahúsum eru nammisjálfsalar það eina í boði osf.
Við verðum að hugsa svolítið hvað er í því sem við erum að kaupa. Velja skásta kostinn og kenna börnunum og oft okkur sjálfum að borða uppá nýtt. Breyta venjum. Svo er það að gera kröfu á aðgengilegri "hollari" fæðu og drykkjum. Stundum höldum við að einhver matur sé góður og hollur en hann er það svo alls ekki, eins og skyr sem er svo sykurbættur að það mætti fá sér súkkulaðistykki en koma svo út á sama stað.
Ég hvet fólk til að hafa opin huga fyrir að breyta venjum. Það erum við sem berum ábyrgð á börnum okkar.

mbl.is Heimsmeistarar í megrun barna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að hugsa lengra

Þetta er áhugavert, sérstaklega í ljósi þess að stór hlut að vandamálum innflytjenda frá "opnuninni" síðasta vor snéri að þessum málum. Við munum að í haust voru börn sem ekki komust í skóla því þau höfðu ekki fengið kennitölu og biðin var nokkur. Að sama skapi komust foreldrar ekki í vinnu og skapaði það fleiri vandamál. Þar sem mikil uppbyggng hefur verið víða um land þá skiptir máli að geta haft í huga hversu mikilli fjölgun má gera ráð fyrir með innflytjendur í huga líka. Aukning á þjónustu svo sem leikskólum, skólum og heilsugæslu verður að fylgja með og gerist það ekki á einni nóttu. Það þarf að gera plön fram í tímann og þá þarf nokkurnvegin að vita hversu mikilli fjölgun megi reikna með. Því það getur verið jafn slæmt skipulag að sitja uppi með tómar byggingar eins og hitt.
mbl.is Tillaga lögð fram í borgarráði vegna innflytjendamála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fleiri búðir - Minna úrval

Spilagleði ræður ríkjum á mínu heimili þessa daganna. Ég á þó í vandræðum með að fá fjölbreitt góð spil eins og maður fékk hérna áðurfyrr. Það voru til minni spil td. fyrr einn sem voru byggð á því að leysa allskyns þrautir, en í dag fynn ég þetta hvergi. Það eru allar búðir með nákvæmlega það sama. Þess vegna lá leið mín á Laugarveginn í spilabúðina einu sönnu en þá hafði einhver lappað upp á hana og nú er hún eins og allar hinar. Úrvalið minnkar um leið og samfélagið stækkar. Fleiri búðir færri vörur. Nú þarf ég að gera mér ferð til útlanda því ég er ekki mikill netshoper.

 


Vinsæl getnaðarvörn

Þetta er alveg rosalegt. Svo vill fólk halda því fram að fóstureiðingar séu ekki notaðar sem getnaðarvörn.  
mbl.is Bretar illa að sér í kynlífsfræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bókin fordæmir breytingarnar á sér sjálf

Sjaldan er rætt um biblíuna án þess að rökræða hana. Það er synd að hugsa til þess að þetta eitt stærsta verk bókmenntarsögunnar hefur verið breytt,bætt, skorið niður, bætt við og hagrætt eins og ekkert sé. Sem, þegar á langtímann er litið, er einstakt á sinn hátt líka og segir þónokkuð um trúarlega þróun í gegnum tímann. Það er þó vafasamt að halda að þessi þíðing sé eitthvað nær hinni upprunalegu biblíu en sú sem var þýdd 1912. Þegar öllu er á botnin hvolft þá er kannski best að lesa lokaorðin í opinberunarbókinni því þar stendur (samhvæmt 1981):

"ég votta fyrir hverjum þeim manni, sem heyrir spádómsorð þessarar bókar, að leggi nokkur við þau, mun Guð á hann leggja þær plágur, sem um er ritað í þessari bók. Og taki nokkur burt nokkuð af orðum spádómsbókar þessarar, þá mun Guð taka hlut hanns í tré lífsins og í borginni helgu, sem um er ritað í þessari bók."


mbl.is „Biblía 21. aldarinnar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byrlað eitur?

Var henni bara ekki byrlað eitur af einhverjum? Það er ekki eins og það hafi ekki verið nægar ástæður til.
mbl.is Heitar deilur um setrið sem Anna Nicole bjó í
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankar og Stjörnubirtan

Mikið verð ég hissa þegar fólk er að fara úr límingunum yfir skemmtunum bankanna. Enginn er þvingaður til viðskipta við neinn ákveðinn banka og hefur það val að skipta við annan banka sem getur boðið lægri þjónustugjöld og veislu með Geir Ólafs. Þetta með þjónustugjöldin og veislurnar er ekki endilega sama málið. Þjónustugjöldin eru svona há því við sættum okkur við þau og gerum ekkert í málinu. Auðvitað eru bankarnir ekki að lepja dauðann úr skel og þess vegna eru gjöldin svona há. Við borgum, megum ekki vera að því að spá í þessu fyrr en allt í einu eins og þruma úr heiðskíru lofti birtist augnlýsing á skjánum með þekktum leikara að óska þér gleðilegs einhverrs. Þá setur fólk samasem merki á milli. Ef ég væri að reka banka þá væri ég að gera hið sama. Þetta eru ekki bara bankar sem eru með há gjöld bara af því að við borgum bara og gerum ekkert í því. Vandinn liggur hjá okkum sjálfum, við borgum út um allan bæ svona gjöld sem eru vel smurð. En það er gott fyrir atvinnulífið að það séu peningar í umferð. Eða er það ekki? Þeir sem eru svona sjokkeraðir yfir þessu hafa val að vera í viðskiptum við aðra, eða geyma bara aurana undir koddanum. En svo er það nú bara það að maður vill alveg vera sá sem fær kveðju frá stórum stjörnum um jól og áramót og sennilega hafa flestir haft gaman af þessu öllu líka. Við höfum skapað þjóðfélag hérna sem gefur mönnum tækifæri á því að verða nokkuð vel efnaðir og það er af hinu góða. Eða er það ekki?

Skynsemi

Hef verið í þónkkurri pásu hérna og hef verið að velta fyrir mér hvort það sé skynsemi að halda úti bloggi? 

Hvað finnst ykkur?


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband