Færsluflokkur: Bloggar

Áróður

Þetta hljómar eins og frétt sem á að læðast inn í undirmeðvitund manna. "Það er alltaf sól í evrópusambandinu" eða eitthvað álíka.


mbl.is Hægt að baða sig áhyggjulaus í Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rómantísk kreppa & útrás

Smá pæling:

Erum við þekkt fyrir að deyja ráðalaus eða hvað?
Mig hefur lengi langað til að blogga um Þessa rómantísku kreppu sem fólk tekur nú andköfum yfir, en ekki í þessum klassíska röfl stíl sem virðisr tröllríða samfélaginu. Slíkur er hljómgrunnur fyrir hávaða og væl að þjóðin telur sig vera líkama handa og fóta lausan. Er þar svo víðs fjarri sem hugsast getur.
Það gæti verið að skapast hið fullkomna ástand fyrr útrás íslendinga. í staðin fyrir að gefa upp öndina og fara að rífast um álveg eða hvern á að hengja eða ekki ættu menn að skoða allt það sem malað gæti gull í stöðunni. Ég nenni ekki að vera enn einn bloggarinn sem talar bara um dauða og drepsóttir, heldur sá sem leggur eitthvað til. Íslendingar eiga jú fisk og ál til útflutnings það vitum við en við eigum líka mikið meira. Við erum með gríðalega flotta sælgætisframleiðslu sem á fullt erindi inn á markaði erlendis, núna fæst íslenskd nammi fyrir slikk og ætti þar af leiðandi að vera auðveldara að selja það út en áður. Spurningin er sú hvort hugvit og áhugi séu til staðar? Þetta gæti skapað fleiri störf á íslandi og gjaldeyri inn í landið. Við höfum í einhverju mæli verið að flytja út íslenskt lambakjöt hvernig væri að setja meiri kraft í það? Svona er hægt að telja lengi og vonast eftir því að aðrar þjóðir fái svo matarást á okkur. Þá á ég auðvitað ekki við um þorramat. Við getum vel lang sitt lítið að mörkum sem til lengri tíma er litið mun gefa okkur meira jafnvægi. Það er til íslensk hönnun, bókmenntir, hátækni og hugbúnaðarger, lyfjaframleiðsla, stoðtækjavinnsla og svo ýmislegt fleira. Þetta er allt það sem við erum að gera nú þegar. Margt getum við síðan gert sem ekki enn er verið að gera hérna og flutt út. Við erum með landið fullt af kláru fólki, það er tími núna til að verð frumkvöðull og það er tími til að styðja við þá sem fyrir eru. Getum við þetta? Er leið út? Hvað haldið þið?

Það er mikilvægt að koma með hugmyndir að "nýrri" umræðu sem gæti svo virkað sem hvatning, eða Guð má vita. Nú ef ekki þá er alltaf hægt að horfa á silfrið.


Að bera ekki ábyrgð

Það er svolítið merkilegt að lesa fréttir að þessu tagi alltaf öðru hvoru. Við setjum framm tölur og rannsóknir um hversu skelfilega feit við erum orðin og hversu mikinn sykur við borðum, stundum jafnvel líka hversu mikið af harðri fitu við erum með í matnum. Hinsvegar spáir enginn í af hverju þetta er og hvernig er hægt að breita því og hver ætti að breita því.
Foreldrar bera auðvita mestu ábyrðina, þetta byrjar allt hjá þeim. Hvað eru foreldrað að gefa börnum sínum að borða, maður fitnar ekki bara af því að loftið er eitthvað að breytast. Hvaða venjur eru í gangi á heimilum? Ég held að foreldrar séu sjáfir margir að bjóða uppá mikið af drasli á heimilum, þetta byrjar allt í innkaupsferðinni. Allar umræður um gos og djúsneyslu barna er sennilega vegna þess að þetta er aðgengilegt og í boði. Vatn þykir ekki drykkur lengur.
Þar sem foreldra eru svo úti í þjóðfélaginu þá taka þeir ákvarðanir um hvernig aðgengi börnin eiga að hafa þegar þau eru í skólum og íþróttum. Hefur einhver spáð í því afhverju það eru gossjálfsalar á víð og dreif um skólalóðir en nánast ekkert hægt að komast í vatn. Á sjúkrahúsum eru nammisjálfsalar það eina í boði osf.
Við verðum að hugsa svolítið hvað er í því sem við erum að kaupa. Velja skásta kostinn og kenna börnunum og oft okkur sjálfum að borða uppá nýtt. Breyta venjum. Svo er það að gera kröfu á aðgengilegri "hollari" fæðu og drykkjum. Stundum höldum við að einhver matur sé góður og hollur en hann er það svo alls ekki, eins og skyr sem er svo sykurbættur að það mætti fá sér súkkulaðistykki en koma svo út á sama stað.
Ég hvet fólk til að hafa opin huga fyrir að breyta venjum. Það erum við sem berum ábyrgð á börnum okkar.

mbl.is Heimsmeistarar í megrun barna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankar og Stjörnubirtan

Mikið verð ég hissa þegar fólk er að fara úr límingunum yfir skemmtunum bankanna. Enginn er þvingaður til viðskipta við neinn ákveðinn banka og hefur það val að skipta við annan banka sem getur boðið lægri þjónustugjöld og veislu með Geir Ólafs. Þetta með þjónustugjöldin og veislurnar er ekki endilega sama málið. Þjónustugjöldin eru svona há því við sættum okkur við þau og gerum ekkert í málinu. Auðvitað eru bankarnir ekki að lepja dauðann úr skel og þess vegna eru gjöldin svona há. Við borgum, megum ekki vera að því að spá í þessu fyrr en allt í einu eins og þruma úr heiðskíru lofti birtist augnlýsing á skjánum með þekktum leikara að óska þér gleðilegs einhverrs. Þá setur fólk samasem merki á milli. Ef ég væri að reka banka þá væri ég að gera hið sama. Þetta eru ekki bara bankar sem eru með há gjöld bara af því að við borgum bara og gerum ekkert í því. Vandinn liggur hjá okkum sjálfum, við borgum út um allan bæ svona gjöld sem eru vel smurð. En það er gott fyrir atvinnulífið að það séu peningar í umferð. Eða er það ekki? Þeir sem eru svona sjokkeraðir yfir þessu hafa val að vera í viðskiptum við aðra, eða geyma bara aurana undir koddanum. En svo er það nú bara það að maður vill alveg vera sá sem fær kveðju frá stórum stjörnum um jól og áramót og sennilega hafa flestir haft gaman af þessu öllu líka. Við höfum skapað þjóðfélag hérna sem gefur mönnum tækifæri á því að verða nokkuð vel efnaðir og það er af hinu góða. Eða er það ekki?

Skynsemi

Hef verið í þónkkurri pásu hérna og hef verið að velta fyrir mér hvort það sé skynsemi að halda úti bloggi? 

Hvað finnst ykkur?


Stjórnmál

Foreldrar eru hópur fólks sem er MJÖG upptekinn. Það heyrist ekki oft frá honum... þess vegna kannski búum við í jafn fjölskylduSlæmu umhverfi. Bara það að vera með börn á leikskóla kostar meira en að vera með í Háskólanámi. Nema hvað það er ekkert val með leikskólabörnin... ef þú ert blankur þá sendiru ekki börnin að vinna á Subway??? þú verður bara að borga. Við erum að tala um mörg hundruð þúsund á ári. Hafnfirðingar eru að borga hræðilega há gjöld fyrir sitt pláss... Það í bæ hefur ekkert verið rætt um lækkun á þessum gjöldum. Foreldrar leikskóla barna eru oftar en ekki að kaupa sitt 1x húsnæði.. með bíl og allann pakkann.. þið vitið. Það er siðlaust að rukka yfir höfuð fyrir þetta... Fólk vinnur svo mikið til að ná endum saman og borgar þeim mun meira í skatt. Þeir sem vinna hvað mest af Íslendingum eru feður!!! Ekki ungir barnlausir menn eða aðrir. Þetta fólk hefur ekki tíma til að vera sterkur þrýstihópur. Það þarf að koma með alvöru pressu á þessa pólitíkusa. Ég vil hvetja fólk í að láta í sér heyra. Einnig vil ég hvetja stjórmálamenn í Hafnarfirði og víða til að rúmlega koma til móts við foreldra leikskólabarna.

Kv. elma


Þekking

Hvað ætli það séu margir sem fá þekkingu sína úr auglýsingum. Ýmislegt um heilsuna og næringu... eins og það að maður egi að borða svona og hinsegin og þetta og hitt. Einnig að mjólkin sé allra meina bót þegar kemur að beinvernd. Við erum ekki að átta okkur á því að þetta er oftar en ekki bara bull. Ég meina það er ekki skemmtilegast að versla í Hagkaup. Til þess að geta unnið úr mjólkinni þurfum við að taka kalkið sem við annars geymum í beinunum. Þetta er algjörlega rangur miskilningur af verstu gerð að halda að mjólkin styrki beinin... Svo vitum við líka að fita er bæði góð og slæm... jurtafita er góð fyrir okkur en dýrafita er slæm. Nú mjólkurvörur eru DÝRAfita Hissa. En svo halda sumir að þeir séu ekki mikið að drekka mjólk.. en skoðaðu þetta... Þú færð þér smjör og ost oná brauð.. jafnvel sósur. Svo yogurt og skyr. Svo sósur og súpur. Pasta með osta eða rjóma sósum.. þið skiljið...  svo fáið ykkur væna sneið af nautaeinhverju og... þið eruð búin að vera að borða belju allan daginn í öll mál. Þetta kalla sumir fjölbreytt fæðuval. Allt er gott í hófi. Fyrir utan þetta þá eru létt mjólkurvörur svo uppfullar af sykri að það jafnast á við að fá sér kókglas. Svo að lokum þá eru vaxtarhormónar í mjólkurvörum fyrir kálfa.... sem vaxa á nokkrum mánuðum frá 30kg og upp í 300kg. eða eitthvað í þá áttina.

Takk fyrir


Biðin langa

Löng virðist sú bið ætla að verða, biðin eftir sumrinu. Það er afskaplega fallegt að sitja inni hjá sér og hlusta á Tom Waits, drekka te og horfa á hlunkasnjókornin þyrlast um fyrir utan gluggann hjá sér. Allt svo hvítt og fagurt... og kalt. Þetta er stund sem venjulega fengi mig til að brosa í hjarta mínu af hamingju, en núna þegar svona langt er liðið á veturinn þá hefur þetta þver öfug áhrif. Það var ekki fyrr en lítill sólargeisli barðist við að komast í gegnum snjóþungann og beint í augun á mér að ég lifnaði öll við og vonleysið fór að minnka. Þið hafið kannski tekið eftir baráttu veturs og sumars, hita og kulda og allt það síðasliðnar vikur? En hvenar kemur sigurinn??.. hvenar er hætt að berjast?? Ef ég get þá ætla ég að vera á Fiji næsta vetur amk. eitthvað.
kv. elma

Nálaprentari

Í dag hefur staðið yfir mikil leit af nálaprentara sem átti hér heima... grunur liggur á að ég hafi ekki séð notagildi í honum og látið farga honum. En svo hefur komið upp sú staða að núna, upp á líf og dauða, vantar þennan prenntara. Nálaprentari. Svo allur dagurinn mun fara í að hafa upp á einum slíkum. Annars er fundur kl. 6 og svo LOST í kvöld. Á morgun ætla ég að vona að ég komist í mitt langþráða hvítvín og humar´s þriðjudagskvöld á 101. Það styttir vikuna.

kv. elma


Viðhaldið

Það er ágætt að hafa viðhald, ef maður þarf mikið að tjá sig eða sínar tilfiningar... Því ekki hef ég verið mjög trú mínum bloggsíðum.. sem eru núna þónokkrar. Það segir kannski bara það sem segja þarf um mig. Er frekar frjó og margslunginn (klofin) og þarf þess vegna að hafa eina síðu fyrir hverja vitleysu sem mér dettur í hug.

Læt þetta duga í bili

kv. ek


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband