Færsluflokkur: Dægurmál
12.2.2007 | 20:07
Vinsæl getnaðarvörn
Bretar illa að sér í kynlífsfræðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.2.2007 | 20:00
Byrlað eitur?
Heitar deilur um setrið sem Anna Nicole bjó í | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.1.2007 | 10:20
Bankar og Stjörnubirtan
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.5.2006 | 20:44
allt horfið
ég var búin að skrifa þetta fína blogg en það kom ekki .. ég veit ekkert hvað varð um það. Ég reyndi að íta á back en ekkert þar heldur. nú fer ég að verða ofur örugg með með þetta og copya allt áður en ég íti á senda.
well nenni ekki að segja frá öllu kv. elma
ps. hvað eftir annað hef ég reynt að koma inn einhverju hér en ekkert gerist
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.4.2006 | 17:22
Ruglingur á Fæðingardeildinni
Ættingjar og vinir hittast við ýmis tækifæri.. sérstaklega fermingar og þá reynir á mannasiðina og kurteisina. Ég skef ofan af skoðunum mínum og þegi þegar á við. Margir þola ekki svona en ég get ekki staðist það að kunna vel við mig í þessu hópi fólks.. sem tengist manni ekki á nokkurn annan hátt en með bóðböndum.. og þau eiga að teljast sterk. Kannski er það rétt sem ávalt hefur verið sagt um mig, "að ég hafi verið ruglingur á fæðingadeildinni". Það þyrfti blóðprufi til að tengja mig við tetta fólk því það er vægt til orða tekið þegar ég segi að ég sé eins og sultublettur á hvítri drakt. Fólkið hittist.. en enginn talar við neinn.. þetta eru um 50 manns og allir bara háma í sig og fara.. ok auðvitað talar fólk en það er af því að það eru makar og vinir innan um sem kunna ekki þessa hefð að þegja. Ég var að vísu í fjölskyldu hitting hjá alveg óskyldu fólki og það var sko ekki setið á því nei nei. Ég sat við hliðinni á konu sem hafðu svo margt að segja að það jafnaðis á við matarlystina hennar... og þegar hún talaði þá frussaði hún óspart yfir borðið.. ég þurfti að hafa mig alla við að forða kaffibollanum mínum áður en eitthvað gumms var komið í hann. Spennó
en ég vil óska ykkur öllum gleðilegrar hátíðar .. og munið að tala með lokaðann munninn.
kv. elma Karen
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.4.2006 | 22:55
Kvenna Mál
Ég var að opna póst um daginn og sá þar auglýsingu frá VR þar sem stóð eitthvað um að karlmenn hefðu 20% lengra sumarfrí en konur... nú af því þeir væru menn. Ég sem vill ekki láta bendla mig við rauðsokkur og aðra feminista því gjarnan er misjafn skilningur manna á þeim. Æ þið vitið þetta með útlitið.. goðsöguna um óháðu konuna sem rakar sig ekki undir höndunum.... ég er eitthvað viðkvæm fyrir því. Hinsvegar er ég öll með því að konur ættu að fá jafnt á við karla.. og reyndar kannski bara meira því við vitum það að án kvenna væri þessi neitanda heimur eins og ein græn ora baun við hlið sunnudags steikinni. Ég á við að það var ekki fyrr en konur fóru að hafa peninga til að ráðstafa sjálfar að hagvöxturinn jókst sem aldrei fyrr. Svo er það annað að þeir menn sem vinna hvað lengst og mest eru feður. Því að þeir eru með hærri laun en konur oftast nær og þess vegna er konan gjarnan heima eða búin fyrr. Nú ég velti fyrir mér.. ég sem fer á kaffihús með vinkonum mínum um miðjan dag og í ræktina og alles... væri minn maður ekki til í að hafa þetta svolítið sangjarnt og fá smá frítíma sjálfur... hitta strákanna og fara í golf eða eitthvað??
Æ þetta eru bara pælingar.. hvað finnst ykkur.....
ps. ég er auðvitað ekki að tala um að heilaskuðlæknrinn og póstburðarmaðurinn ættu að hafa sömu laun... þið vitið hvað ég á við.
kv. elma
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.4.2006 | 00:40
Samsæri
Ekkert frá mér í dag af áróðri né stjórmálum eða nokkru öðru. Er þó með á prjónunum samsæriskenningar og annað gómgæti. Þetta verður þó að bíða um sinn. Hinsvegar vil ég vekja athyggi fólks á tónleikum sem eru á lauggardad kl. 17:00 í tónlistarskóla kópavogs. Það er þarna stúlka ung en með töluvert magnaða rödd. Dag einn opnuðust einhverjar flóðgáttir í rödd hennar og miðað við aldur og fyrri störf þá er hún send af Guði til að syngja fyrir okkur hin. En well læt þetta vera og kem svo með krafsandi samsæri og óvinsælar skoðanir seinna á morgunn.
kv. elma
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)