18.4.2006 | 21:58
hvað er Diet í raun og veru?? (hrollvekja)
Hvað er Diet eginlega og hver er saga þess.. af hverju var farið að nota sætuefni?? Ein af aukaverkunum sætuefnisins er þyngdaraukning . Flestir hafa heyrt sögur um skaðsemi þess en ef svo er af hverju er það þá ekki tekið af markaði?? Í því landi sem menn fara gjarnan ofta í mál við mann og annan yrði sennilega faraldur í málsóknum á hendur þeirra sem nota sætuefnin í vörur sínar. Auglýsingar hafa talað um að diet sé ekki fitandi en svo kemur í ljós að vitað hefur verið lengi að það er síður en svo. Einnig er þetta efni sem eitur í líkamanum okkar og veldur margskonar sjúkdómum.. eða eitrar líkaman og hann veikist. Það hefur verið gerð heimildarmynd um sætuefni og er sú mynd síður en svo vinsæl. RUV vill ekki sjá myndina, það er vegna þess að bæði mjólkursamsalan og Vífilfell auglýsa grimmt á þeim bæ. Þetta eins og allt annað snýst um peninga...
Ég verð sennilega með meira um þetta og fer ýtarlegra í málin seinna... bæði með gos, sætuefni og mjólkurvörur sem ég hef þegar talað um hér a blogginu.
kv. elma
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Stjórnmál og samfélag, Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
Ég rakst nú bara á þessa síðu af því nafnið á þessu bloggi vakti áhuga minn!
Er þetta ekki umdeilt með sætuefnin?
Eða er þetta orðið að staðreynd?
Sandra Norðfjörð, 18.4.2006 kl. 22:32
Þetta er staðreynd, en það eru miklir hagsmunir í húfi. Þess vegna, fyrir þá sem eiga hvað mesta hagsmuna að gæta, reyna að þagga nirðí þeim sem háværir eru með þessi mál.
En ég mun koma með fleira hingað í sambandi við þetta og fara nánar í málið. Þetta var bara svona rétt til að byrja.
kv. elma
Elma, 19.4.2006 kl. 00:02
Hmm.. Í fyrsta lagi eru til margar gerðir af gervisykri, sumar þeirra (sér í lagi asesúlfam-k, aspartam) hafa reynst valda krabbameini og hvítblæði í nýlegum rannsóknum á rottum.
Hinsvegar hversu fitandi þessir drykkir eru er mjög umdeilt, vissulega eykst insúlín framleiðslan eitthvað við neyslu gervisykurs sem getur lækkað blóðsykur og framkallað hungur - sem kallar á neyslu matvæla og mögulega fitnun. Hinsvegar er náttúrulega engin nýtanleg orka í þessum drykkjum, miðað við sætu drykkina, svo líkaminn getur ekki breytt sykurlausum drykk í fitu.
Ég er sammála því að þetta sé óhollt, en bara spurning um að hafa staðreyndirnar 100% ;-)
Steinn E. Sigurðarson, 19.4.2006 kl. 09:53
Bla bla bla bla bla.
Það er _ALLT_ óhollt og getur verið eitrað í of miklu magni. Ef þú étur 1000 tómata á dag geturu drepist vegna þess að þeir innihalda oggupínsumagn af eitri, sem hefur engin áhrif á okkur og skolast úr líkamanum .. en í miklu magni myndi þetta steindrepa okkur.
Sykraðir gosdrykkir eru meira seðjandi heldur en ósykraðir því að það er einhver nýtanleg orka í þeim, sama hvað hún er óholl og því er hún aðeins lengur að fara í gegnum líkamann.
Svo svona til gamans þá mæli ég alveg með Pepsí max og Sígó kúrnum .. virkaði fyrir mig ;P
Ólafur N. Sigurðsson, 19.4.2006 kl. 10:04
Hæ! Sá bloggið þitt og ákvað að kasta á þig kveðju!
Mía (www.raus.is/mia) (IP-tala skráð) 19.4.2006 kl. 10:46
Já, allt er óhollt í miklu magni, og er ég mikill raunsæjissinni þegar það kemur að svona hræðsluáróðri, hinsvegar las ég um daginn um rannsókn á rottum þar sem aspartam olli hvítblæði og krabbameini á síðasta þriðja hluta æviskeiðs rotta, sem höfðu innbyrt hlutfallslega svipað magn af aspartami og ef mannvera neytti ca. 2 lítra af diet drykkjum á dag.
Auðvitað þýðir þetta ekki að allir sem hafi bragðað sykurlausa gosdrykki verði veikir, langt í frá, hinsvegar þýðir þetta (fyrir mig) að ég er hættur að drekka pepsi max eins og það sé ambrósía, drekk það mun sjaldnar, en ekki uppundir 2 lítra á dag eins og áður.
Annars hjálpar alveg að skipta úr sykruðum drykkjum yfir í sykurlausa, fyrir þá sem vilja grennast, það var eitt af því sem ég gerði þegar ég grenntist.
Steinn E. Sigurðarson, 19.4.2006 kl. 11:19
Já auvðitað grennist fólk á sígarettunni einni saman en það er kannski ekki málið. Fitandi.. ég hefði kannski átt að segja þyngdaraukandi... og jú það er alveg verið að fara rétt með staðreyndir. Hinsvegar þar sem ég hef lítinn tíma núna skal ég gefa mér betri tíma í að svara þessu. Kannski í kvöld á meðann kallinn horfir á leikinn ;)
Elma, 19.4.2006 kl. 12:25
Ég var ekki að meina að þú hefðir ekki staðreyndirnar 100% Elma, heldur bara að útskýringin væri ekki 100% skýr, full af niðurstöðum, en of lítið af forsendum, svo ég bætti þeim við :-)
Steinn E. Sigurðarson, 19.4.2006 kl. 16:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.